Kvennafundir verða annan hvern miðvikudag í moskunni frá kl. 20:30 til 22:00 eða seinna ef fólk vill. Það fer 1 og hálfur tími í kennslu/ræðu/lestur um íslam og svo er bara létt spjall eftir það.
Við höfum ákveðið á þessu ári að byrja á grunninum í íslam, sem sagt, tawheed (monotheism), það að trúa á aðeins einn Guð og hvernig við getum sýnt fram að það sé til aðeins einn Guð, en ekki tveir, þrír eða tíu. Hvað er það sem Allah segir okkur um Sig, heiminn, okkur og hver er leiðin sem þarf að fara til þess að komast nær honum, þekkja hann og hlíða honum.
Svo verður farið í dýpri mál sem snúast að trúnni, um alls konar efni með því að vitna í Qur'an og Hadíð frá spámanninum (sallal laahu alaihi wasallam). Þetta verður skemmtilegt og fræðandi inshallah (ef Guð lofar). Við komum svo allar með eitthvað snarl, drykki og svoleiðis. Vonandi sjáum við sem flestar inshallah!
Sunnudagsskólinn...!
Sunnudagsskólinn mun byrja aftur 23. sept fyrir alla múslímakrakka á Íslandi. Hann byrjar alltaf kl 11:00 stundvíslega. Á 1 og hálfum tíma er farið í að kenna um íslam, í gegnum sögur um spámennina til dæmis en líka reynum við að koma í kjarnann íslams, með einföldum dæmum, myndum og leikjum inshallah (ef Guð lofar). Við ætlum að reyna líka að fara út úr moskunni og gera eitthvað skemmtilegt saman einu sinni í mánuði inshallah.
Þetta fer þannig að ein systir mun kenna um íslam út frá bók sem er kennd víða í skólum í Bandaríkjunum og Evrópu ("I love Islam"), sem er skemmtilega uppset fyrir krakka og kennara. Svo mun einn bróður kenna börnunum stuttar súrur úr Qur'an inshallah.
Ný
saga af trúskiptum: Saga Isra
Upplýsingar
um Ramadan 2006
Ársskýrsla Félags
Múslima á Íslandi (PDF skjal)
Lög Félags Múslima á
Íslandi
Myndir
frá Eid Al-Fitr og Eid Al-Adha 2006 samkomunum.
Myndir
frá Eid al-Fitr
samkomunni í nóvember 2003 og Eid al-Adha samkomunni þann
1. febrúar 2004.
Ný
grein um Íslam: Ummali
manna um Kóraninn
Persónulegar
sögur af trúskiptum: Saga Núr og saga Amínu
(báðar á ensku, áður birtar á erlendum síðum á netinu)
Myndir
frá þvertrúarlegri samkomu, sem var haldin
þann 25. janúar 2004 í safnaðarheimili Háteigskirkju. Þar komu saman
einstaklingar trúfélaga bahá'ía, gyðinga, kristnna, múslima og soka
gakkai búddista. Samveran var haldin til að árétta mikilvagi gagnkvamrra
virðingar og til að stuðla að friði við upphaf nýs árs. hér.
Pílagrímsferð til Mekku.
Grein eftir Íslending sem fór til Mekku í pílagrímsfer?.
.JPG)
Dagskrá
kvennafunda í vetur er að finna hér.
AFS
styrkur til
múslima
AFS veitir einn
200.000 kr. námsstyrk til skiptinema úr röðum
múslima á Íslandi til að fara á vegum AFS í ársdvöl eða hálfsársdvöl
sumari? 2004. Styrkurinn er veittur úr sjóði á vegum alþjóðasamtaka AFS sem er til að auka fjölbreytni innan
AFS. Nánari upplýsingar hjá AFS á Íslandi.
|