Lög Félags múslima á Íslandi
1. gr.
Heiti félagsins er Félag múslima á
Íslandi, skammstafað FMÍ, og er heimilisfang
þess Dalsel 34,109 Reykjavik.
2. gr.
Allir þeir sem játa Íslamska trú og/eða
og eru sammála markmiðum félagsins geta gerst
félagar í FMÍ.
3. gr.
1. Markmið FMÍ eru að:
a) að gera múslimum á Íslandi kleift
að iðka trú sína.
b) að stuðla að jákvæðum viðhorfum þeirra er ekki
fylgja Íslam til trúarbragðanna.
c) að koma í veg fyrir hvers konar öfgar, ofstæki
og yfirgang í nafni trúarbragða, Íslam
eða annarra, og að efla virðingu fyrir og umburðarlyndi
gagnvart öllum trúarbrögðum.
d) að vinna gegn hvers konar mismunum á grundvelli
uppruna, ætternis eða trúarbragða.
2. Markmiðum
sinum hyggst FMÍ ná:
a) með því að skapa félagsmönnum vettvang
til trúariðkunnar.
b) með kynningar - og útgáfustarfsemi.
c) með trúarbragðatengdri menningarstarfsemi.
d) með heimsóknum og öðrum samskiptum.
e) með góðu fordæmi félagsins og félagsmanna.
4. gr.
1. Stjórn og Öldungaráð fara með stjórn
FMÍ.
2. Stjórn
FMÍ fer með æðsta vald í félaginu í
veraldlegum málum utan a?alfundar.
3. Öldungaráð
FMÍ fer mep æðsta vald í félaginu hvað
varðar trúarleg málefni og hefur eftirlit
með því að stjórn FMÍ fari að lögum
og anda Íslam og er henni til fulltyngis í
þeim efnum.
5. gr.
Stjórn FMÍ skal skipuð fimm stjórnarmönnum
og skal hún kosinn af félagsmönnum á
aðalfundi til eins árs. Formaður skal kosinn beinni
kosningu en að öðru leyti skiptir stjórnin með
sér verkum á fyrsta stjórnarfundi eftir
aðalfund. Að formanni frátöldum skipa stjórnina
ritari, gjaldkeri og tveir meðstjórnendur og er ritari
staðgengill formanns. Á aðalfundi skal einnig kjósa
tvo varamenn í stjórn.
6. gr.
1. Öldungaráð skal skipað 9 félagsmönnum,
þ.á.m. skal formaður FMÍ vera fullgildur meðlimur
öldungaráðsins.
2. Félagsmenn
sem játa Íslamstrú eru kjörgengir
í Öldungaráð, hafi þeir hreint mannorð,
séu fjár síns ráðandi, hafi
fasta búsetu á Íslandi og hafi verið
félagar í FMÍ í minnst fimm
ár. Öldungaráð skal skipað félagsmönnum
af báðum kynum og má aldrei vera skipað færri
en þremur af hvoru kyni.
3. Í
Öldungaráð skal kosið á aðalfundi sem
á eru mættir minnst 3/10 hluti skráðra félaga
FMÍ. Losni sæti í Öldungaráði
á milli aðalfunda skal með minnst 30 daga fyrirvara
auglýsa almennan félagsfund til að kjósa
í laus sæti í ráðinu. Í slíkri
auglýsingu skal koma fram að kjósa eigi í
Öldungaráðið og eiga fyrrgreind ákvæði
um lágmarksmætingu á aðalfund þar sem slík
kosning fer fram, einnig við um almennan félagsfund
af þessu tagi. Í auglýsingu um aðalfund eða
almennan félagsfund þar sem kjósa á
í Öldungaráð, skal koma fram að óskað
sé tilnefninga e'a framboða í ráðið.
Viku fyrir aðalfund eða almennan félagsfund skal
lokað fyrir tilnefningar og skal kosið á milli þeirra
sem þ á hafa verið tilnefndir eða boðið sig fram.
4. Kjörnir
meðlimir Öldungaráðsins eru átta og skulu
þeir kjörnir með einfaldri kosningu, þar sem þeir hljóta
kosningu í þau sæti sem laus eru sem flest atkvæði
hljóta á aðalfundi eða almennum félagsfundi.
Öldungaráðið kýs sér formann ár
hvert á fyrsta fundi ráðsins eftir aðalfund
og gegnir hann formennsku í eitt ár í
senn. Sá sem gegnt hefur formannsembætti Öldungaráðsins,
skal eigi kjörgengur til þess embættis að nýju
fyrr en allir aðrir meðlimir ráðsins hafa gegnt formannsembætti
eða sérstaklega beðist undan því að taka embættið
að sér.
5. Kjörnir
meðlimir Öldungaráðs sitja í ráðinu
til lífstíðar, nema þeir uppfylli ekki lengur
kjörgengisskilyrði, sbr. 2. mgr, eða kjósi að
láta af störfum. Öldungaráð getur
vikið meðlimi úr ráðinu með atkvæðum ? hluta
kjörinna meðlima ráðsins, enda séu ríkar
ástæður fyrir hendi.
6. Fundir
Öldungaráðs skulu haldnir lágmark á
6 mánaða fresti og skal formaður ráðsins bo'a
til þeirra með sannanlegum hætti í hvert sinn.
7. Öldungaráð
tekur ákvarðanir með einföldum meirihluta, sbr. þ ó 8. mgr.
8. Öldungaráð
verður að samðykkja fjárfestingar sem hafa veruleg
áhrif á fjárhagslega stöðu og/eða
skuldbindingar FMÍ. ?egar um slík mál
er að ræða þarf að lágmarki ? hluti kjörinna
meðlima Öldungarðsins að sitja fund og þurfa
2/3 ?eirra sem fundinn sitja að samþykkja þ á ráðstöfun
sem stjórn félagsins leggur til, eigi hún
að ná fram að ganga.
9. Öldungaráðið
tekur ákvarðanir FMÍ um fræðslumál
og um samskipti við önnur félög múslima
á Íslandi og erlendis.
10.
Komist Öldungaráð að þeirri niðurstöðu
að athafnir stjórnar FMÍ séu á
einhvern hátt ekki í samræmi við lög
eða anda Íslam, hvort sem ráðinu hvefur borist
um þa' kvörtun eða það tekið málið á
dagskrá að eigin frumkvæði, skal formaður Öldungaráðs
greina stjórn FMÍ frá þeirri niðurstöðu.
Hafi stjórnin ekki innan 30 daga bætt úr þeim
meintu annmörkum sem Öldungaráð gerði athugasemdir
við, skal Öldungaráð kynna félagsmönnum
efni athugasemdanna og ákveða almennan félagsfund
um viðkomandi málefni. Á slíkum fundi
skal félagsmönnum gefinn kostur á að
lýsa skoðunum sínum á því máli
er athugasemdir Öldungaráðsins lutu að og skal
Öldungaráðið taka ákvörðun sína
í málinu með hli?sjón af fram komnum
skoðunum félagsmanna.
7. gr.
1. Aðalfund FMÍ skal halda fyrsta föstudag í
maí ár hvert. þ ó er heimilt að fresta
honum ef ríkar ástæður eru fyrir hendi, þó
aldrei um meira en fjórar vikur.
2. Dagskrá
aðalfundar skal vera sem hér segir:
a) Skýrsla stjórnar og reikningar
b) Skýrsla Öldungaráðs
c) Kosning stjórnar og varamanna
d) Kosning endurskoðenda
e) Kosning til Öldungaráðs, eftir því
sem við á
f) Umræður um komandi starfsár.
g) Önnur mál.
3. Aðalfundur
skal auglýstur með minnst 30 daga fyrirvara og skulu
drög að dagskrá hans fylgja auglýsingunni.
8. gr.
1. Ef til slita félagsins kemur skulu slitin samþykkt
af eigi færri en? hluta atkvæða á almennum félagsfundi
þar sem mættir eru eigi færri en ? hluti félagsmanna.
Einnig þarf ? hluti Öldungaráðsmeðlima að samþykkja
félagsslit.
2. Komi
til slita á félaginu skulu allar eignir þess,
eftir að skuldir hafa verið greiddar, renna til Háskólans
í Reykjavík.
9. gr.
Stjórn félagsins getur mep 4/5 hluta atkvæða
vikið félagsmanni úr félaginu fari
háttsemi hans í bága vip markmið FMÍ
og/eða skaði ímynd íslam.
|