Ramadan
There are no translations available.

Ramadan, níundi mánuður islamska ársins, er föstumánuður Múslima. Þann mánuð fasta Múslimar frá dögun til sólseturs. Þar sem islamska dagatalið miðast við tunglgang færist Ramadan til á milli ára um u.þ.b. 11 daga og er lengd mánaðarins breytileg, annað hvort 29 eða 30 dagar. Ekki er hægt að segja til nákvæmlega hvenær mánuðurinn byrjar þar sem að það fer eftir hvenær sést til nýs tungls.

Ramadan er sá tími þar sem einstaklingur endurnýjar andlega heilsu sína með því að fasta. Þrátt fyrir að Ramadan sé oft álitinn mjög erfiður og flókinn tími af öðrum en múslimum, þá er þetta talinn hátindur hollustu og ástar gagnvart Allah og er því mjög mikilvægur tími í augu múslima. Ramadan mánuðurinn er notaður til að endurnýja trú sína og til að bæta einstaklinginn trúarlega, andlega og félagslega.

Ramadan er talinn jákvæð líkamleg áskorun ár hvert. Eins og kom fram áðan þá færist Ramadan ár hvert og í gegnum lífstíð múslima hefur Ramadan bæði komið upp á vetri, þar sem eru stuttir dagar, og á sumri þar sem þeir eru lengri og erfiðara að fasta. Samkvæmt öllu er þetta til þess gert að reyna á trúsækni okkar þar sem líkamlegt úthald endurspeglar andlega stöðu okkar, eitthvað sem múslimar reyna stöðugt að bæta.
.

Félag Múslima á Íslandi hefur þann háttinn á að hefja föstuna um leið og Sádi Arabía. Áætlað er að fyrsti dagur Ramadan árið 2010 verði miðvikudagurinn 11. ágúst.