|
There are no translations available.
Ármúli 38, 3 hæð (gengið inn úr Selmúla) 108 Reykjavik Formaður: Salmann Tamimi sími: +354 895-1967 netfang:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Hægt er að nálgast lög félagsins hér (PDF skjal) Ársskýrslu félagsins árið 2003 er að finna hér (PDF skjal) Almenn starfsemi Félags Múslima Miðstöðin er opin öll kvöld frá klukkan 20:30, en hægt er að hafa samband við Salmann ef uppi eru séróskir um notkun miðstöðvarinnar á öðrum tímum. Á föstudögum er haldin föstudagsbæn (Jum´a) og er tíminn breytilegur eftir því hvenær hádegisbænin (Dhuhr) er. Kvennafundir Reglulegir kvennafundir eru haldnir yfir vetrarmánuðina, frá september til maí. Aukafundir eru einstaka sinnum haldnir yfir sumarmánuðina og eru þeir þá auglýstir sérstaklega. Fundir vetrarins 2006-1007 munu hefjast eftir Ramadan. Nánari upplýsingar verða birtar þegar nær dregur. Dagskrá fundanna skiptist yfirleitt í þrennt: 1. útskýringar á Kóraninum (30-45 mín) 2. efni sem er fyrirfram ákveðið (30-45 mín) 3. létt spjall og veitingar (til kl. 22:00) Mismunandi er hverjir flytja erindi á fundunum, fer það eftir því hver bíður sig fram hverju sinni. Í lok hvers fundar skal liggja fyrir dagskrá næsta fundar. Þær sem geta eru beðnar um að koma með veitingar til að hafa á boðstólum (t.d. drykki, kex, snakk eða álíka) Börn eru velkomin en mæður þeirra bera ábyrgð á að þau trufli ekki fundina. Nánari upplýsingar veitir Julie Sigurðardóttir , s: 847-4874 eða tölvupóstur:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Þátttakendur kvennafundanna eru einnig með netpóstlista: //groups.yahoo.com/group/kvennafundir
|