Í nafni Guðs, hins náðuga, hins miskunnsama.

Islam.is er síða um Íslam fyrir Íslendinga gerð af íslenskum múslimum. Megintilgangur síðunnar er tvíþættur: að veita almennar upplýsingar um Íslam fyrir áhugasama og að aðstoða múslima á Íslandi. Eitt helsta verkefni síðunnar er þýðing á Kóraninum með þarfir múslima í huga. Vill ritstjórnin hvetja alla þá sem hafa áhuga, þá sérstaklega sérfræðinga á borð við íslenskufræðinga og guðfræðinga, að koma með athugasemdir og leiðréttingar til að betrumbæta þýðinguna, en það verður að viðurkennast að þýðendur Islam.is eru ekki sérfræðingar heldur aðeins leikmenn.

Tillögur um efni fyrir síðuna og aðrar ábendingar eru einnig vel þegnar.

Friður veri með ykkur.

Ritstjórn Islam.is